Jæja dömur, nú hefur listinn litið dagsins ljós.
Eins og fram kom í kommenti mínu hér fyrir neðan þá er mæting kl. 06.30 heima hjá Ernu í Fellstúni 5. Mælst er til þess að meðlimir mæti tímanlega enda ströng dagskrá það sem eftir lifir dags. Hera vakni vinsamlegast upp úr klukkan 5.
En listinn er eftirfarandi:
-Myndavél
-Alkóhól
-Hljóðfæri (heimatilbúið, eða ekki)
-Íþróttabuxur og hlýrabolur
-Húfa og vettlingar
-Hlífðarjakki
-Hlý peysa
-Fínni fatnaður
-Náttföt
-Sundföt og handklæði
-Snyrtidót
-Góða skapið (vó það má ekki gleymast!)
-Þeir sem eiga skemmtilega I-poda vinsamlega takið þá með. Tívolíútvarp verður meðíferð.
-Ef einhver ætti videocameru þá væri það líka skemmtilegt : )
Til viðbótar viljum við að:
Hópur 1-Gula liðið.
Margrét, Sunna og Sandra komi með eitthvað gult í ferðina.
Hópur 2-Græna liðið.
Hera, Ósk og Solla komi með eitthvað grænt í ferðina.
Hópur 3-Rauða liðið.
Erna, Sigríður og Sylvía komi með eitthvað rautt í ferðina.
Þegar talað er um "eitthvað" þá er átt við fatnað, höfuðfat eða annað. Verið því hugmyndaríkar

Mæting í: venjulegum fatnaði. Gallabuxur, peysa og götuskór eru alveg súper. Gott er að hafa hlýja peysu eða jakka við höndina á leiðinni.